Skyrtuþjónusta

Herraskyrtan hreinsuð og pressuð á 950 kr. Komdu með skyrtur vikunnar og sæktu þær tilbúnar á herðatré.

  • Herraskyrta: 950 kr.
  • Skyrta: 1.390 kr.
  • Kvenskyrta: 1.380 kr.

Hreinar skyrtur án fyrirhafnar

Skyrturnar eru hreinsaðar, kraginn og ermalíningarnar yfirfarin sérstaklega og þær pressaðar. Þú velur hvort þær koma á herðatré eða samanbrotnar.

Í leiðinni í vinnuna

Borgartúnið er fullt af vinnustöðum og við erum beint í leiðinni. Margir koma með skyrtur vikunnar á mánudegi og sækja þær síðar í vikunni.

Kvenskyrtur og blússur

Kvenskyrtur kosta 1.380 kr. Blússur úr silki eða viðkvæmum efnum eru meðhöndlaðar sérstaklega og kosta 3.990 kr.

Gulir blettir í kraga og handarkrikum

Sviti og leifar af svitalyktareyði safnast upp í efninu með tímanum. Regluleg hreinsun heldur þeim í skefjum. Sjá ráð um bletti.

Spurt og svarað

Hvað kostar að láta hreinsa og pressa skyrtu?

Herraskyrta er á tilboði á 950 kr., hreinsuð og pressuð. Almennt verð á skyrtu er 1.390 kr.

Hvenær eru skyrturnar tilbúnar?

Yfirleitt innan 2–3 virkra daga. Við staðfestum afhendingardag þegar þú kemur.

Geta fyrirtæki verið í föstum viðskiptum?

Já. Sendu okkur línu á efnarlauginn@gmail.com og við finnum fyrirkomulag sem hentar.

Borgartún 22, 105 Reykjavík. Opið virka daga 08:00–17:00. Engin tímabókun.

Hringja í 551 6199