Þvottamerkin útskýrð
Á miðanum innan í flíkinni eru fimm tegundir tákna. Þau segja til um þvott, bleikingu, þurrkun, straujun og faglega hreinsun. Hér er hvað þau þýða.
Þvottur
Balinn segir til um vatnsþvott. Talan er hámarkshiti í gráðum og strik undir balanum þýða mildari meðferð.
Þvottur við hámark 30 °C
Talan í balanum er hámarkshiti í gráðum. Algengar tölur eru 30, 40, 60 og 95.
Mildur þvottur
Eitt strik undir balanum: mildara kerfi og minni vinding. Hentar t.d. gerviefnum.
Mjög mildur þvottur
Tvö strik: ullar- eða viðkvæmt kerfi með lítilli hreyfingu.
Handþvottur
Aðeins handþvottur, hámark 40 °C. Ekki nudda eða vinda fast.
Má ekki þvo
Flíkin þolir ekki vatnsþvott. Hún fer yfirleitt í efnahreinsun.
Bleiking
Þríhyrningurinn segir til um hvort nota megi bleikiefni.
Má bleikja
Allar tegundir bleikiefna eru leyfðar.
Aðeins súrefnisbleiking
Ekki nota klór. Aðeins súrefnisbleikiefni sem fara vel með liti.
Má ekki bleikja
Engin bleikiefni. Það á líka við um blettaeyða sem innihalda bleikiefni.
Þurrkun
Hringur í ferningi á við um þurrkara. Strik í ferningi segja hvernig á að þurrka flíkina án þurrkara.
Þurrkari, lágur hiti
Einn punktur: má fara í þurrkara á lágum hita.
Þurrkari, venjulegur hiti
Tveir punktar: má fara í þurrkara á venjulegum hita.
Má ekki fara í þurrkara
Þurrkari getur látið flíkina hlaupa eða skemmt hana.
Hengja til þerris
Eitt lóðrétt strik: hengja upp á snúru eða herðatré.
Hengja blautt upp
Tvö lóðrétt strik: hengja upp án þess að vinda.
Þurrka liggjandi
Lárétt strik: leggja flatt, t.d. ullarpeysur, svo þær togni ekki.
Í skugga
Skástrik í horninu: þurrka í skugga svo litir dofni ekki.
Straujun
Punktarnir í straujárninu segja til um hámarkshita.
Lágur hiti
Einn punktur: hámark 110 °C, án gufu. T.d. akrýl og nælon.
Meðalhiti
Tveir punktar: hámark 150 °C. T.d. ull, silki og pólýester.
Hár hiti
Þrír punktar: hámark 200 °C. T.d. bómull og hör.
Má ekki strauja
Hiti getur brætt eða skemmt efnið. Gufa getur líka verið varasöm.
Fagleg hreinsun
Hringurinn er fyrir okkur í efnalauginni. Bókstafurinn segir hvaða hreinsun flíkin þolir.
Efnahreinsun (P)
Má fara í hefðbundna efnahreinsun með algengum hreinsiefnum.
Efnahreinsun (F)
Aðeins mildari leysiefni (kolvetnislausnir). Við veljum meðferð eftir merkinu.
Mild efnahreinsun
Strik undir hringnum þýðir mildari meðferð.
Fagleg vatnshreinsun (W)
Hreinsun í vatni með sérstakri aðferð í efnalaug. Eitt eða tvö strik þýða mildari meðferð.
Má ekki efnahreinsa
Flíkin þolir ekki efnahreinsun. Fylgdu þá hinum merkjunum.
Ertu með flík merkta P, F eða W? Komdu með hana í fatahreinsun í Borgartúni 22.
Táknin byggja á alþjóðlega staðlinum ISO 3758. Á sumum flíkum, t.d. frá Bandaríkjunum, geta táknin litið örlítið öðruvísi út. Ef þú ert í vafa skaltu koma með flíkina og við lesum úr merkinu með þér.
Spurt og svarað
Hvað þýðir hringur á þvottamerki?
Hringur þýðir fagleg hreinsun í efnalaug. P og F eiga við um efnahreinsun og W um faglega vatnshreinsun. Yfirstrikaður hringur þýðir að ekki má efnahreinsa flíkina.
Hvað þýða punktarnir á straujárninu?
Einn punktur er lágur hiti (hámark 110 °C), tveir punktar meðalhiti (hámark 150 °C) og þrír punktar hár hiti (hámark 200 °C).
Má setja flík í þvottavél ef balinn er yfirstrikaður?
Nei. Yfirstrikaður bali þýðir að flíkin þolir ekki vatnsþvott. Hún fer yfirleitt í efnahreinsun.
Hvað þýða strikin undir balanum?
Eitt strik þýðir mildara þvottakerfi og tvö strik mjög milt kerfi, t.d. fyrir ull.
Borgartún 22, 105 Reykjavík. Opið virka daga 08:00–17:00. Engin tímabókun.
Hringja í 551 6199