Gluggatjöld og gardínur
Gluggatjöld eru verðlögð eftir þyngd: 3.900 kr. á kg og innri gluggatjöld 7.900 kr. á kg. Komdu með gluggatjöldin og við vigtum þau og gefum þér verð á staðnum.
Dúkar og servíettur
Stór dúkur kostar 4.690 kr., lítill dúkur 2.100 kr. og servíettur 650 kr. Gott er að koma með dúkana sem fyrst eftir veislu, áður en blettir ná að festast.
Sófaklæði og pulluver
Laus sófaklæði og pulluver eru hreinsuð eftir umhirðumerkingum. Sófaklæði kosta 4.250 kr. á kg og stórt pulluver 2.550 kr.
Fyrir veitingastaði
Veitingastaðir geta samið um reglubundna hreinsun á dúkum og servíettum. Sjá fyrirtækjaþjónustu.