Rúmfatnaður gististaða
Reglubundin hreinsun á sængum, koddum og yfirdýnum. Spyrjið um magnafslátt og hvort sækja og senda henti ykkar rekstri.
Fatahreinsun fyrir gesti
Ferðafólk þarf oft að láta hreinsa eða pressa föt með stuttum fyrirvara. Við semjum um afhendingu sem hentar móttökunni ykkar.
Textíll fyrir veitingastaði
Dúkar, servíettur og annar textíll í daglegum rekstri, á umsömdum kjörum.
Skyrtur fyrir starfsfólk
Vinnustaðir í Borgartúni og nágrenni geta boðið starfsfólki skyrtuþjónustu. Hafið samband um fyrirkomulag.