Fatahreinsun í Reykjavík

Jakkaföt, kjólar, kápur og viðkvæm efni fá meðferð sem hentar efninu. Komdu með flíkina í Borgartún 22 og við förum yfir hana með þér.

  • Jakkaföt: 7.000 kr.
  • Kjóll: 5.900 kr.
  • Frakki / kápa: 6.900 kr.

Hvað er efnahreinsun?

Efnahreinsun, oft kölluð þurrhreinsun, hreinsar flíkur án vatns. Hún hentar efnum sem þola illa þvott, eins og ull, silki, kasmír og fóðruðum jökkum, og heldur sniði og áferð.

Við lesum umhirðumerkingar hverrar flíkur og veljum aðferð eftir efni og ástandi: efnahreinsun, mildan þvott eða sérmeðferð. Allt er pressað áður en það fer aftur á herðatré. Svona lestu þvottamerkin.

Jakkaföt, drögtur og yfirhafnir

Jakkaföt eru hreinsuð og pressuð svo línur og brot haldist. Við tökum líka frakka, kápur, úlpur og stórar dúnúlpur. Ef þú vilt aðeins láta pressa jakka eða buxur kostar það 2.900 kr.

Kjólar og sparifatnaður

Samkvæmiskjólar, brúðarkjólar og fínni flíkur fá sérstaka athygli. Perlur, pallíettur og viðkvæmar skreytingar eru skoðaðar áður en hreinsun hefst og við látum þig vita ef eitthvað er áhættusamt.

Leður og rúskinn

Leður og rúskinn eru hreinsuð í samstarfi við sérhæfða aðila. Komdu með flíkina og við gefum þér verð og afhendingartíma.

Blettir og skemmdir

Segðu okkur hvað fór í flíkina og hvort þú hafir reynt að ná blettinum úr. Bentu líka á lausar tölur, skraut eða skemmdir. Við metum blettinn en getum ekki tryggt að allir blettir náist. Fyrstu viðbrögð við blettum.

Spurt og svarað

Hvað kostar að hreinsa jakkaföt?

Hreinsun á jakkafötum kostar 7.000 kr. Stakur jakki eða buxur kosta 3.500 kr. Öll verð eru með virðisaukaskatti.

Hvað tekur fatahreinsun langan tíma?

Flest verk eru tilbúin innan 2–3 virkra daga. Við staðfestum afhendingardag þegar þú kemur með flíkina. Sérverkefni geta þurft sérstakt mat.

Hvað kostar að hreinsa kjól?

Kjóll kostar frá 5.900 kr. Brúðarkjólar og mikið skreyttir kjólar eru metnir á staðnum.

Hreinsið þið leður og rúskinn?

Já, í samstarfi við sérhæfða aðila. Komdu með flíkina og við gefum þér verð og tíma.

Get ég fengið flík hreinsaða samdægurs?

Hafðu samband í síma 551 6199. Hraðþjónusta fer eftir álagi og tegund flíkur.

Borgartún 22, 105 Reykjavík. Opið virka daga 08:00–17:00. Engin tímabókun.

Hringja í 551 6199