Hversu oft á að hreinsa sængina?
Gott er að láta hreinsa sæng og kodda einu sinni til tvisvar á ári, oftar ef ofnæmi er á heimilinu. Hrein sæng er léttari og loftmeiri.
Dúnsængur þurfa þolinmæði
Dúnn þarf að þorna alveg og losna í sundur svo hann klessist ekki. Dúnsængur eru því hreinsaðar og þurrkaðar vandlega svo þær verði aftur léttar og fylltar.
Svefnpokar, yfirdýnur og rúmteppi
Eftir útileguna eða sumarbústaðinn er gott að koma með svefnpokann. Við hreinsum líka yfirdýnur, rúmteppi og pífulök.
Fyrir gististaði
Hótel og gistiheimili geta samið um reglubundna hreinsun á rúmfatnaði. Sjá fyrirtækjaþjónustu.